Hussein bin Abdullah II., krónprins Jórdaníu og eiginkona hans Rajwa Khaled Alseif eiga von á barni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá konungshöllinni í Jórdaníu.
Hjónin giftu sig við pomp og prakt síðasta sumar og hafa greinilega ákveðið að bíða ekki lengi með barneignir. Von er á barninu í sumar.
Vilhjálmur Bretaprins er sagður vera mjög náinn vinur krónprinsins en hann og Katrín voru viðstödd brúðkaup hjónanna sem þótti mikið sjónarspil og engu var til sparað.
Jórdanía á einnig sérstakan stað í hjarta Katrínar prinsessu en hún átti heima þar í þrjú ár þegar hún var barn.