Ágúst Freyr og Elísabet Metta eignuðust stúlku

Ágúst Freyr Hallsson og Elísabet Metta Svan Ásgeirsdóttir eignuðust dóttur.
Ágúst Freyr Hallsson og Elísabet Metta Svan Ásgeirsdóttir eignuðust dóttur. Ljósmynd/Aðsend

Ágúst Freyr Hallsson og Elísabet Metta Svan Ásgeirsdóttir eignuðust sitt annað barn á dögunum. Fyrir eiga þau soninn Viktor Svan sem kom í heiminn árið 2018. 

Ágúst Freyr og Elísabet Metta eru stofnendur og eigendur staðarins Maka'i þar sem þau selja acai-skálar sem hafa notið mikilla vinsælda bæði hér á landi og erlendis. 

„Hún er komin“

Parið deildi gleðifregnunum með sameiginlegri færslu á Instagram þar sem þau birtu fallega mynd af dóttur sinni. „Hún er komin“ skrifuðu þau við myndina. 

Fjölskylduvefur mbl.is óskar þeim innilega til hamingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert