Leiddur á brott í handjárnum, berfættur og á baðsloppnum

Quinn og Richard hafa verið gift frá árinu 2019.
Quinn og Richard hafa verið gift frá árinu 2019. Samsett mynd

Eiginmaður raunveruleikastjörnunnar Christine Quinn, Christian Richard, var handtekinn vegna gruns um heimilisofbeldi. 

Lögreglan í Los Angeles var kölluð að heimili hjónanna í Hollywood-hæðum á þriðjudag. Að sögn lögreglu hafði komið til ósættis með heimilisfólki, en Richard er sagður hafa slegið tveggja ára son hjónanna með glerflösku. 

Christine Quinn, sem gerði garðinn frægan í raunveruleikaþáttaröðinni Selling Sunset, var víst áætlað skotmark Richard en glerflaskan sem hann fleygði í Quinn hæfði son hjónanna í staðinn. Meiðsli drengsins eru sögð smávægileg. 

Richard var leiddur á brott í handjárnum, berfættur og á baðsloppnum. Hann sætir nú gæsluvarðhaldi.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er ástæðulaust að fyllast sektarkennd út af þeim hlutum sem ekki eru í þínu valdi að breyta. Reyndu að sýna lipurð og samstarfsvilja og þá muntu ná takmarki þínu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er ástæðulaust að fyllast sektarkennd út af þeim hlutum sem ekki eru í þínu valdi að breyta. Reyndu að sýna lipurð og samstarfsvilja og þá muntu ná takmarki þínu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg