Karl Bretakonungur heilsaði almenningi þegar hann mætti til páskamessu á sunnudag. Þetta var fyrsta stóri viðburðurinn sem Karl mætti til eftir að hann greindist með krabbamein. Tengdadóttir hans, Katrín prinsessa af Wales, mætti hins vegar ekki en hún glímir einnig við krabbamein.
Messan fór fram í Windsor og sögðu sjónarvottar að Karl hafi litið vel út. Virtist hann einnig vera í góðu skapi að því fram kemur á vef BBC. Karl hefur haldið áfram að vinna þrátt fyrir að vera í krabbameinsmeðferð. Hann hefur hins vegar ekki mætt á opinbera viðburði eins og um páskana.
Vilhjálmur Bretaprins og Katrín prinsessa af Wales mættu ekki til messu eins og þau eru vön að gera. Ástæðan er sú að Katrín er í krabbameinsmeðferð. Hjónin vörðu páskunum ásamt börnum sínum á sveitasetri sínu í Anmer Hall.
Ekki hefur verið greint frá því hvers kyns krabbamein Katrín sé með, en í tilkynningu Kensington hallar segir að talið sé að hún nái fullum bata.
Katrín fór í aðgerð á kviðarholi í janúar en þá var ekki ljóst að prinsessan væri með krabbamein. „Eftir aðgerðina kom þó í ljós að krabbamein hafi verið til staðar,“ sagði Katrín þegar hún greindi frá krabbameininu. Þá hafi henni verið ráðlagt að hefja strax geislameðferð.
Anna prinsessa, Andrés prins og Játvarður prins, systkini Karls konungs mættu til messu í Windsor. Makar þeirra mættu einnig. Sarah Ferguson, fyrrverandi eiginkona Andrésar prins, mætti einnig en hjónin fyrrverandi eru góðir félagar.