Karl III Bretakonungur segist vera „svo stoltur af Katrínu og hugrekki hennar“ vegna tilkynningar hennar fyrr í dag þar sem kom fram að hún hefði greinst með krabbamein og væri nú í geislameðferð.
Þetta segir í tilkynningu frá konungsfjölskyldunni en BBC greinir frá.
Þar segir að konungurinn sé í nánum samskiptum við „hans kæru tengdadóttur“, en hann greindist sjálfur með krabbamein í janúar.
Hann og Kamilla drottning muni „halda áfram að bjóða fram kærleik sinn og stuðning til fjölskyldunnar allrar á þessum erfiðu tímum“.