Þjóðaröryggisráðherra Ísraels, Itamar Ben Gvir, lenti í bílslysi fyrr í dag. Þrír aðrir slösuðust í slysinu, en Ben Gvir var á leið sinni frá blaðamannafundi þegar slysið varð.
Ben Gvir var að ávarpa blaðamenn eftir að ung kona var stungin til bana í Tel Aviv í Ísrael fyrr í dag. Ben Gvir sagði í ræðu sinni að vopnaður almennur borgari hafi drepið morðingjann og sagði að: „Vopn bjarga lífum“.
Ben Gvir og hinir þrír sem slösuðust í slysinu voru færðir á sjúkrahús, en ástand þeirra sem slösuðust er sagt stöðugt.
Tveir bílar urðu fyrir skemmdum í slysinu, en ekki er vitað um tildrög þess.