Rússar hafa bætt Volodímír Selenskí Úkraínuforseta á lista yfir eftirlýsta glæpamenn.
Í dag mátti sjá nafn Selenskís í gagnagrunni rússneska innanríkisráðuneytisins yfir þá sem eru „eftirlýstir“ af stjórnvöldum fyrir glæpi.
Selenskí er eftirlýstur „samkvæmt hegningarlögum“. Ekki var farið í nánari útskýringar.
AFP-fréttaveitunni hefur ekki borist svör um af hverju Selenskí er á listanum.
Selenskí greindi frá því í fyrra að hann vissi um að minnsta kosti „fimm eða sex“ tilraunir til þess að taka hann af lífi.
Degi eftir að innrás Rússa í Úkraínu hófst sagði Vladimír Pútín Rússlandsforseti í sjónvarpsávarpi að úkraínski herinn ætti að steypta Selenskí af stóli.
Tugir þúsunda einstaklinga eru á lista rússneskra stjórnvalda yfir eftirlýst fólk, þar á meðal fjöldinn allur af erlendum leiðtogum.