Gleðin skein úr andlitum barna í Elliðaárdal

Fjölbreytt dagskrá og föndur var í boði.
Fjölbreytt dagskrá og föndur var í boði. mbl.is/Óttar

Lokadagur HönnunarMars var í dag og bauð Elliðaárstöð til fjölskylduviðburðar þar sem lögð var áhersla á nýsköpun, hönnunarhugsun og hugmyndaheim barna. 

Yngsta kynslóðin segir ekki nei þegar tækifæri gefst til að …
Yngsta kynslóðin segir ekki nei þegar tækifæri gefst til að busla aðeins. mbl.is/Óttar

Börnum og fjölskyldum þeirra var boðið að taka þátt í fjölbreyttri dagskrá eða njóta samveru í fallegu umhverfi Elliðaárstöðvar. Fjölmargir lögðu leið sína í Elliðaárdalinn og virtust njóta heimsóknarinnar vel.

mbl.is/Óttar

Meðal þess sem var á boðstólum var upplifunarviðburður á Bístró með VAXA Technologies og nýsköpunarsmiðja í samstarfi við Hugmyndasmiði. Afrakstur raftextílsmiðju sem unnin var í samstarfi við Selásskóla var til sýnis og gestir gátu prófað sig áfram í tilraunasmiðju með rafrásir og textíl. Þá var og hægt að busla í vatnsleikjagarðinum.

mbl.is/Óttar
mbl.is/Óttar
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert