Hefja skimun fyrir augnsjúkdómum af völdum sykursýki

Við skimunina er notuð sérstök myndavél frá sprotafyrirtækinu RetinaRisk, sem …
Við skimunina er notuð sérstök myndavél frá sprotafyrirtækinu RetinaRisk, sem styðst við gervigreind og metur líkur á skemmdum í augnbotnum. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Sykursýkismóttaka Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja hefur innleitt formlega skimun fyrir augnsjúkdómum af völdum sykursýki fyrst allra heilbrigðisstofnanna. 

Við skimunina er notuð sérstök myndavél frá sprotafyrirtækinu RetinaRisk, sem styðst við gervigreind og metur líkur á skemmdum í augnbotnum. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.

Mikilvægt eftirlit með augnheilsu fólks með sykursýki

Lionsklúbbur Njarðvíkur veitti HSS veglegan styrk til kaupa á myndavélinni. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra, frumkvöðlar frá RetinaRisk og fulltrúar frá Lionsklúbbnum heimsóttu HSS nýverið þar sem þessi nýjung í þjónustu stofnunarinnar var kynnt.

„Þessi nýjung gerir kleift að sinna mikilvægu eftirliti með augnheilsu fólks með sykursýki á einfaldan og skilvirkan hátt. Reglubundin skimun gerir kleift að grípa tímanlega inn í ef þörf krefur. Nýsköpun í heilbrigðisþjónustu þar sem gervigreind kemur við sögu er ákaflega spennandi og við eigum án efa eftir að sjá miklar framfarir í þeim efnum í náinni framtíð,“ er haft eftir Willum Þór Þórssyni heilbrigðisráðherra í tilkynningunni.

Skemmdir í augnbotnum er fylgikvilli sykursýki og nauðsynlegt að fylgjast með framvindu augnbotna til að koma í veg fyrir sjónskerðingu eða blindu af völdum sjúkdómsins. Myndavélin auðveldar þetta eftirlit og með því að nota hana við skimun sparast jafnframt óþarfar komur til augnlækna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert