Sjö unnu 100 þúsund krónur hver

Fyrsti vinningur kvöldsins gekk ekki út.
Fyrsti vinningur kvöldsins gekk ekki út.

Hvorki fyrsti vinningur né bónusvinningurinn fóru út í Lottó-útdrætti kvöldsins og verður potturinn því fjórfaldur næsta laugardag.

Eins fór með fyrsta vinning í Jóker kvöldsins en sjö voru með annan vinning sem færir þeim 100 þúsund krónur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslenskri getspá.

Einn miði var keyptur á Doddagrilli í Garði, einn á AK-INN, Akureyri, einn í Lottó-appinu og fjórir eru með miðana sína í áskrift.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka