Forsíða |
Innlent | Erlent | Íþróttir | Tækni | Fólk | 200 mílur | Smartland | Matur | | Fjölskyldan | Sporðaköst | Bílar | K100 | Ferðalög | Viðskipti | Blað dagsins
Íþróttir
Jürgen Klopp stýrði Liverpool í síðasta skipti á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld er liðið gerði jafntefli gegn Aston Villa, 3:3, í svakalegum leik.
meira
Englendingurinn John Fury faðir hnefaleikaheimsmeistarans Tysons Fury blóðgaðist í átökum við þjálfarateymi Oleksandr Usyk fyrir bardaga þeirra í Sádi-Arabíu um komandi helgi.
meira
Barcelona hafði betur gegn Real Sociedad á heimavelli í spænsku 1. deildinni í fótbolta í kvöld.
meira
Hin 16 ára gamla Ágústa María Valtýsdóttir reyndist hetja KH er liðið vann eins marks sigur á Augnabliki í 2. deild kvenna í fótbolta á Hlíðarenda í kvöld, 1:0.
meira
Grindavík vann sinn fyrsta sigur í 1. deild kvenna í fótbolta á þessu tímabili er liðið lagði HK, 1:0, á heimavelli sínum í Safamýri í annarri umferðinni í kvöld.
meira
Keflavík komst í kvöld í úrslitaeinvígið gegn Njarðvík í Íslandsmóti kvenna í körfubolta eftir æsispennandi oddaleik í Reykjanesbæ.
meira
Kvennalið Stjörnunnar er úr leik í Íslandsmóti kvenna í körfubolta eftir naumt tap gegn Keflavík í undanúrslitaeinvígi liðanna í kvöld. Það má hæglega segja að Stjarnan falli úr keppni með mikilli reisn eftir að hafa veitt Keflavík harða keppni í 5 leikja seríu sem endaði með hörkuspennandi oddaleik.
meira
John Durán var hetja Aston Villa er liðið mætti Liverpool á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.
meira
Stefán Númi Stefánsson, atvinnumaður í amerískum fótbolta eða ruðningi, hefur gert samning við svissneska félagið Helvetic Mercenaries, en liðið leikur í ELF-deildinni, þeirri sterkustu í álfunni. Staðfesti Stefán tíðindin við mbl.is í kvöld.
meira
Keflavík og Stjarnan mættust í oddaleik í undanúrslitum Íslandsmót kvenna í körfubolta í kvöld og lauk leiknum með sigri Keflavíkur 81:76.
meira
Aston Villa og Liverpool gerðu jafntefli, 3:3, í 37. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á Villa Park í Birmingham í kvöld.
meira
Atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús náði fínum árangri á Challenge de España-mótinu á Áskorendamótaröðinni um helgina en leikið var í Sevilla.
meira
ÍR gerði sér lítið fyrir og hafði betur gegn ÍBV, 1:0, í 2. umferð fyrstu deildar kvenna í fótbolta á heimavelli sínum í Mjóddinni í kvöld.
meira
Knattspyrnukonan Katla María Þórðardóttir er komin á blað með sænska liðinu Örebro en hún skoraði mark liðsins er það mátti þola tap á útivelli gegn Norrköping í efstu deild Svíþjóðar í kvöld.
meira
Knattspyrnumaðurinn Valdimar Jóhannsson, leikmaður Selfoss, verður frá keppni næstu mánuðina vegna meiðsla sem hann varð fyrir í leik liðsins gegn Kormáki/Hvöt í 2. deildinni á dögunum.
meira
Handknattleiksþjálfarinn Jón Gunnlaugur Viggósson er hættur þjálfun meistaraflokks karla hjá Víkingi.
meira
Enska knattspyrnufélagið Manchester United hefur aflýst lokahófi karlaliðs félagsins. Félagið heldur lokahófið árlega þar sem bestu leikmenn tímabilsins eru verðlaunaðir.
meira
Vestri mun að óbreyttu spila sinn fyrsta heimaleik í Bestu deild karla í knattspyrnu gegn Stjörnunni sunnudaginn 2. júní.
meira
Körfuknattleiksmaðurinn Sigurður Gunnar Þorsteinsson hefur lagt skóna á hilluna eftir farsælan feril, en miðherjinn er 35 ára gamall.
meira
Þeir Sævar Atli Magnússon og Andri Lucas Guðjohnsen eru báðir í liði 29. umferðar dönsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta.
meira
fleiri