Hlaupasumarið er formlega hafið ef marka má vikuna á Instagram sem var bæði sumarleg og fjörug!
Það var mikið partí í Öskjuhlíðinni þegar hlauparar lögðu af stað í Bakgarðshlaupið, en á meðal keppenda er hlaupadrottningin Mari Järsk. Það voru þó fleiri sem fóru að hlaupa um helgina, en Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir reimaði á sig hlaupaskóna í Systkinahlaupinu á meðan ofurhjónin Simona Vareikaité og Sigurjón Ernir Sturluson létu sig ekki vanta í hlaupaveisluna í Vestmannaeyjum!
Hlaupadrottningin Mari Järsk lagði af stað í Bakgarðshlaup náttúruhlaupa á laugardaginn en þegar fréttin er skrifuð, rúmum tveimur sólarhringum síðar, er hún enn á hlaupum!
Inga Lind Karlsdóttir, eigandi Skot Productions, birti sólríkar golfmynd frá því um páskana með söknuði, en hún eyddi páskunum á glæsilegum golfvelli á Tenerife.
Birgitta Líf Björnsdóttir, samfélagsmiðlastjarna og markaðsstjóri World Class, og kærasti hennar Enok Jónsson birtu fallegar myndir úr skírn sonar síns.
Fimleikakonan Thelma Aðalsteinsdóttir skráði nafn sitt í sögubækurnar í vikunni þegar hún fékk æfingu nefnda eftir sér í dómarabók Alþjóða fimleikasambandsins á Evrópumótinu í áhaldafimleikum sem haldið var í Rimini á Ítalíu. Mögnuð!
Hlaupasumarið er svo sannarlega hafið og förðunarfræðingurinn og hlauparinn Rakel María Hjaltadóttir hoppaði hæð sína af gleði!
TikTok-stjarnan Birta Hlín Sigurðardóttir fagnaði því að það væri loksins komið sólríkt veður í Kaupmannahöfn!
Birta Hlín var ekki sú eina sem naut lífsins í Köben í vikunni, en áhrifavaldurinn Hildur Sif Hauksdóttir skellti sér á stefnumót í borginni.
Tónlistarkonan Júnía Lín Jónsdóttir er sannkölluð tískudrottning sem nýtur þess að klæða sig upp í fallega hönnun.
Förðunardrottningin Lilja Dís Smáradóttir klæddi sig líka upp í fallega hönnun í vikunni og spókaði sig um í miðborg Reykjavíkur.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, reimaði líka á sig hlaupaskóna og tók þátt í Systkinahlaupinu ásamt systkinum sínum.
Förðunarfræðingurinn Alexandra Sif Nikulásdóttir, oftast kölluð Ale Sif, fór úr sloppnum og Cros-skónum yfir í glæsilegan kjól og tryllta skó!
Hlaupahópurinn Hugurinn fer hærra tók þátt í Puffin Run í Vestmannaeyjum um helgina. Af myndum að dæma var bilað stuð hjá þeim!
Það var ekki bara sól í Kaupmannahöfn heldur líka í Helsinki í Finnlandi, en fagurkerinn Aníta Mjöll Ægisdóttir skellti sér þangað.
Ofurhjónin Simona Vareikaité og Sigurjón Ernir Sturluson létu sig að sjálfsögðu ekki vanta í Puffin Run í Vestmannaeyjum og bættu sig bæði!
Áhrifavaldurinn Brynhildur Gunnlaugsdóttir er greinilega búin að taka sumarflíkurnar upp!
Það fjölgaði í fjölskyldu Annie Mistar Þórisdóttur og Frederik Aegidius á dögunum. Parið tók á móti sínu öðru barni, dreng, á dögunum.
Íþróttakonan Katrín Tanja Davíðsdóttir er yfir sig ástfangin af kærasta sínum Brooks Laich.
Rúrik Gíslason kann að stilla sér upp.
Jón Gnarr forsetaframbjóðandi opnaði kosningaskrifstofu í Aðalstræti á dögunum. Fjölmenni var mætt til að sýna Jóni stuðning.
Sandra Björg Helgadóttir tók fallega mynd af vaxandi óléttukúlu sinni.
Forsetaframbjóðendurnir Helga Þórisdóttir, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir og Ásdís Rán Gunnarsdóttir skelltu í mynd eftir pallborðsumræður.
Leik- og söngkonan Þórdís Björk Þorfinnsdóttir gerði heiðarlega tilraun til að fara af stað í fæðingu uppi á sviði.
Sunneva Ása Weisshappel blómstrar á meðgöngunni. Hún á von á sínu fyrsta barni með sambýlismanni sínum, Baltasar Kormáki.