Heimaleikur Tindastóls á Akureyri

Vatninu var veitt frá vellinum á Sauðárkróki en hann hafði …
Vatninu var veitt frá vellinum á Sauðárkróki en hann hafði þá þegar orðið fyrir talsverðum skemmdum. Ljósmynd/Jóhann Helgi Sigmarsson

Tindastóll þarf að spila heimaleik sinn gegn Fylki í Bestu deild kvenna í fótbolta á fimmtudaginn á velli KA á Akureyri.

Eins og áður hefur komið fram varð Sauðárkróksvöllur fyrir skemmdum vegna vatnselgs sem flæddi inn á hann í leysingum daginn fyrir fyrsta leik liðsins í deildinni, gegn FH 22. apríl.

Þó var leikið á vellinum eftir eins sólarhrings frestun, en völlurinn er illa farinn og ekki leikhæfur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert