Fær nýjan samning hjá Arsenal

Jorginho hefur reynst Arsenal-liðinu vel.
Jorginho hefur reynst Arsenal-liðinu vel. AFP/Justin Tallis

Arsenal hefur boðið ítalska knattspyrnumanninum Jorginho nýjan samning. 

Jorginho gekk til liðs við Arsenal í janúar 2023 en hann skrifaði undir eins og hálfs árs samning, með möguleika á öðru ári. 

Ætlar félagið hins vegar ekki að virkja þann hluta samningsins heldur bjóða Ítalanum glænýjan samning. Enskir miðlar greina frá. 

Jorginho, sem er 32 ára gamall, hefur reynst Arsenal-liðinu vel og eru þjálfarar liðsins sagðir afar ánægðir með hlutverk hans sem leiðtogi meðal ungra samherja. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert