„Ég verð að bera ábyrgð“

Ange Postecoglou brúnaþungur á Stamford Bridge í kvöld
Ange Postecoglou brúnaþungur á Stamford Bridge í kvöld AFP/Glyn KIRK

Ange Postecoglou sagði lið sitt ekki hafa átt neitt skilið eftir tap Tottenham gegn Chelsea í kvöld. Þetta var þriðji tapleikur Tottenham í röð í baráttunni um sæti í Meistaradeild Evrópu.

„Þetta var ekki gott kvöld. Við sýndum ekki hugarfarið sem ég býst við að mínir menn sýni og það er mér að kenna, ég verð að bera ábyrgð á því“.

„Þegar allt kemur til alls er það ég sem vel liðið og undirbý það fyrir leikinn. Við vorum slakir og ég verð að greina sjálfan mig og hvernig ég undirbý liðið“.

Tottenham mætir Liverpool á sunnudaginn á Anfield og þurfa nauðsynlega á sigri að halda í kapphlaupinu við Aston Villa um fjórða sætið sem gefur þáttökurétt í Meistaradeild Evrópu. Villa er með 67 stig en Tottenham sjö stigum minna en eiga leik til góða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert