Meiðslalistinn styttist hjá United

Jonny Evans hefur spilað 19 leiki með United í úrvalsdeildinni …
Jonny Evans hefur spilað 19 leiki með United í úrvalsdeildinni í vetur og gæti verið með á ný næsta mánudag. AFP/Paul Ellis

Enska knattspyrnuliðið Manchester United hefur glímt við talsverða fjarveru leikmanna vegna meiðsla undanfarnar  vikur og mánuði en nú er aðeins að rofa til í þeim efnum.

Félagið skýrði frá því á heimasíðu sinni í dag að Jonny Evans og Anthony Martial væru byrjaðir að æfa með liðinu á ný.

Martial hefur ekkert spilað vegna meiðsla síðan í janúar og Evans meiddist í byrjun apríl.

United sækir Crystal Palace heim á mánudagskvöldið en liðið er í sjötta sæti úrvalsdeildarinnar þegar fjórum leikjum er ólokið, sex stigum á eftir Tottenham sem er í fimmta sætinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert