Liverpool vann Tottenham, 4:2 á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag í skemmtilegum leik.
Liverpool fór vel af stað í fyrri hálfleik, voru flottir í pressu og sköpuðu mörg hættuleg færi og fengu dauðafæri strax á níundu mínútu. Mohamed Salah komst inn á teiginn og skaut úr þröngu færi en Vicario sá við honum. Harvey Elliott náði frákastinu og þrumaði boltanum framhjá Vicario og á mitt markið en þar var Cristian Romero mættur og hreinsaði af marklínunni.
Fyrsta mark leiksins kom eftir aðeins stundarfjórðung. Það skora Salah sem var aftur mættur í byrjunarlið Liverpool en hann byrjaði síðasta leik liðsins á bekknum.
Cody Gakpo keyrði inn á völlinn og sendi boltann á fjær þar sem Salah var aleinn og stangaði boltann í netið af stuttu færi.
Andrew Robertson skoraði annað mark leiksins sem kom á lokamínútu fyrri hálfleiks. Trent Alexander-Arnold sendi boltann á lofti inn í teig, Robertson tók hann niður, hefði getað skotið en sendi hann á Salah sem skaut en Vicario varði. Robertson var fljótur að átta sig, mætti á frákastið og potaði boltanum í netið.
Á 34. mínútu fór Gody Gakpo niður inn í vítateig Tottenham og Liverpool-menn vildu skiljanlega víti. Fengu það ekki en fengu í staðin skyndisókn í andlitið sem varð þó ekkert út, þeir unnu boltann aftur og mættu þrír á tvo en skot Salah fór framhjá.
Það tók Liverpool aðeins fimm mínútur til að skora í seinni hálfleik en þriðja mark þeirra skoraði Gakpo með skalla eftir fyrirgjöf frá Elliott.
Á 59. mínútu skoraði Elliott svo glæsilegt mark. Hann fékk boltann fyrir utan teiginn frá Salah undir pressu, kom sér fyrir beint fyrir framan markið og hamraði boltanum upp í samskeytin.
Stuttu eftir fjórða mark Liverpool gerði Ange Postecoglou þrefalda skiptingu sem blés lífi í leikinn en þeir Richarlison, Oliver Skipp og James Maddisonkomu inn á.
Á 73. mínútu skorar svo Richarlison fyrsta mark Tottenham eftir fyrirgjöf frá Brennan Johnson. Virkilega flott sending og Richarlison þurfti ekki nema að leggja boltann í markið.
Richarlison lagði svo upp annað mark Tottenham á 77. Mínútu. Hann fékk sendingu þegar hann var með fullt af plássi inni í vítateig Liverpool og lagði hann í rólegheitum út á Son sem setti hann snirtilega í netið.
Á 80. mínútu fékk Liverpool fínt færi þegar Elliott sendi boltann fyrir og Gravenberch tók furðulegt hopp í loftinu og boltinn fór í jörðina og inn í teig. Micky Van de Ven gerði ekkert til þess að hreinsa og Salah sendir boltann utanfótar framhjá úr dauðafæri.
Liverpool er nú í þriðja sæti deildarinnar og allt þarf að fara úrskeiðis hjá Arsenal og Manchester City svo liðið eigi séns á titlinum.