Palace valtaði yfir United

Crystal Palace er að bursta Manchester United.
Crystal Palace er að bursta Manchester United. AFP/Adrian Dennis

Crystal Palace valtaði yfir Manchester United á heimavelli sínum í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld, en lokatölur urðu 4:0. 

Michael Olise kom Palace yfir strax á 12. mínútu og Jean-Philippe Mateta sá um að Palace var með 2:0 forskot í hálfleik. 

Vont varð verra fyrir United í seinni hálfleik því Tyrick Mitchell bætti við þriðja markinu, áður en Olise gerði sitt annað mark, fjórða mark Palace og þar við sat. 

Manchester United er í níunda sæti með 54 stig. Palace er í 14. sæti með 43. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert