Bolton er komið í úrslitaleik í umspili um sæti í B-deild enska fótboltans, þrátt fyrir tap á heimavelli gegn Barnsley í kvöld, 3:2.
Bolton vann fyrri leikinn á útivelli 3:1 og einvígið samanlagt 5:4. Jón Daði Böðvarsson var ekki með Bolton í kvöld.
Liðið mætir annaðhvort Peterborough eða Oxford í úrslitum á Wembley en Oxford vann fyrri leikinn á heimavelli, 1:0.