Logi Tómasson skoraði í sannfærandi sigri Strömsgodset á Kristiansund, 4:0, í 32-liða úrslitum norska bikarsins í knattspyrnu í dag.
Logi kom inn á 35. mínútu og kom Strömsgodset í 3:0 undir blálok fyrri hálfleiks. Hilimir Rafn Mikaelsson kom inn á 65. mínútu fyrir Kristiansund en Brynjólfur Darri Willumsson var utan hóps.
Þá er Viking einnig komið í 16-liða úrslit bikarsins en Patrik Gunnarsson stóð ekki vaktina í marki liðsins í sigri gegn Tromsdalen, 4:0, í dag.