Mætt aftur til æfinga hjá stórveldinu

Cecilía Rán Rúnarsdóttir á æfingu með íslenska landsliðinu.
Cecilía Rán Rúnarsdóttir á æfingu með íslenska landsliðinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Cecilía Rán Rúnarsdóttir, landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, hefur hafið æfingar með þýska stórveldinu Bayern München að nýju eftir langa fjarveru vegna meiðsla.

Cecilía Rán hefur ekkert spilað á yfirstandandi tímabili eftir að hún meiddist illa á hné á æfingu með Bæjurum í ágúst síðastliðnum. Þá fór hnéskelin úr lið.

„Loksins komin aftur á völlinn með liðinu. Gæti ekki verið ánægðari,“ skrifaði Cecilía Rán á Instagramaðgangi sínum í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert