Andrésar Andar leikarnir á Akureyri hófust með pompi og prakt í kvöld.
Leikarnir hófust við setningarathöfn í Íþróttahöllinni á Akureyri að lokinni stærðarinnar skrúðgöngu frá Lundarskóla en um 1.500 tóku þátt.
Leikarnir eru stærsta skíðamót landsins með tæplega 900 keppendur á aldrinum 4-15 ára ár hvert.
Í ár eru 876 börn frá 16 félögum á Íslandi skráð.
Alls koma um 3.000-4.000 manns að leikunum með einum eða öðrum hætti að þjálfurum, foreldrum og fjölskyldum meðtöldum.
Um langt skeið hefur verið keppt bæði í alpagreinum skíðaíþrótta sem og skíðagöngu, en árið 2012 var í fyrsta skipti keppt á snjóbrettum og hefur sú grein verið að eflast og stækka innan leikanna.
Einnig hefur verið keppt í svokölluðum stjörnuflokki sl. 10 ár, en þar keppa fatlaðir eða hreyfihamlaðir íþróttamenn.
Um nokkurra ára skeið hefur yngri börnum á aldrinum 4-5 ára einnig boðist að taka þátt á leikjabraut – en meðal yngri barnanna er ekki keppt um verðlaun heldur hljóta öll börnin þátttökuverðlaun.
Eru 86 börn í yngsta flokki skráð til þátttöku í ár.
Frekari upplýsingar og dagskrá mótsins má finna hér.