Elín Jóna til Árósa

Elín Jóna Þorsteinsdóttir flytur innan Jótlands í sumar
Elín Jóna Þorsteinsdóttir flytur innan Jótlands í sumar Ljósmynd/Jon Forberg

Markvörður handboltalandsliðsins, Elín Jóna Þorsteinsdóttir, skiptir til danska úrvalsdeilarliðsins Aarhus United í sumar.
Það er handbolti.is sem greinir frá félagskiptunum.

Elín Jóna leikur með EH Aalborg sem hefur þegar tryggt sér sigur í næstefstu deild danska handboltans en hún skrifar undir tveggja ára samning við Aarhus.

Aarhus hafnaði í 11. sæti af fjórtán liðum í deildinni í ár og tekur þessa dagana þátt í umspili um að halda sér í deildinni.

handbolti.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert