Ótrúleg dramatík á Seltjarnarnesi

Ída Margrét Stefánsdóttir átti stórleik fyrir Gróttu.
Ída Margrét Stefánsdóttir átti stórleik fyrir Gróttu. mbl.is/Óttar Geirsson

Grótta jafnaði metin í 2:2 í einvígi sínu gegn Aftureldingu í umspili um sæti í úrvalsdeild kvenna í handknattleik í fjórða leik liðanna á Seltjarnarnesi í dag.

Grótta hafði betur í vítakeppni, 4:1, en staðan að loknum venjulegum leiktíma var 22:22. Hvorugu liðinu tókst að knýja fram sigur í tvíframlengdum leik.

Ída Margrét Stefánsdóttir var markahæst hjá Gróttu með 12 mörk en Anna Katrín Bjarkadóttir var markahæst hjá Aftureldingu með 10 mörk.

Oddaleikur liðanna fer fram að Varmá í Mosfellsbæ á laugardaginn kemur en sigurvegarinn í einvíginu leikur í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert