Aron meiddur á fingri

Aron Pálmarsson átti erfitt uppdráttar í gær og fór að …
Aron Pálmarsson átti erfitt uppdráttar í gær og fór að lokum meiddur af velli Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Aron Pálmarsson meiddist á fingri í leik FH og ÍBV í undanúrslitum Íslandsmótsins í handbolta í Vestmannaeyjum í gær.

Aron staðfesti við Vísi að hafa fengið högg á baugfingur hægri handar í leiknum og óljóst er hvort hann geti tekið þátt í oddaleik liðanna sem fram fer á sunnudaginn.

„Ég hef verið betri. Ég fékk eitthvað í puttann og er á leið í myndatöku og svoleiðis í dag. Verkurinn það mikill að ég gat ekki haldið á boltanum eða kastað,“ Sagði Aron við Vísi og bætir við að hann voni að hann geti spilað á sunnudag.

ÍBV sigraði FH í vítakeppni í gær eftir hreint út sagt ótrúlegan handboltaleik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert