Gidsel jafnar markametið

Mathias Gidsel hefur skorað úr 76% skota sinna í þýsku …
Mathias Gidsel hefur skorað úr 76% skota sinna í þýsku deildinni í ár. AFP/Jessica Gow

Danski handboltamaðurinn Mathias Gidsel hefur jafnað 23 ára gamalt met Kuyng-Shin Yoon í þýsku 1. deildinni yfir mörk skoruð í opnum leik.

Gidsel hefur skorað 248 mörk sem eru jafn mörg og Yoon skoraði á sínum tíma úr opnum leik. Yoon skoraði í heildina 324 mörk en þar af voru 76 úr vítaköstum. Gidsel hefur ekki tekið eitt einasta vítaskot á tímabilinu.

Þar að auki spilaði Yoon 38 leiki en Gidsel hefur einungis spilað 31 og lið hans, Füchse Berlin, á þrjá leiki eftir á tímabilinu.

Tveir Íslendingar eru á listanum yfir markahæstu leikmenn þýsku deildarinnar. Ómar Ingi Magnússon er fimmti og Viggó Kristjánsson sjötti. Íslenski Daninn Hans Lindberg er sjöundi á listanum en hann verður 43 ára í ágúst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert