Níu íslensk mörk í úrslitakeppninni

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, númer 15, lék vel þrátt fyrir tap.
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, númer 15, lék vel þrátt fyrir tap. mbl.is/Óttar Geirsson

Íslensku landsliðskonurnar í sænska liðinu Skara skoruðu samanlagt níu mörk er liðið mátti þola tap á heimavelli gegn Sävehof, 26:24, í öðrum leik liðanna í undanúrslitum um sænska meistaratitilinn í handbolta í kvöld.

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, sem lék einnig mjög vel í fyrsta leiknum, skoraði fimm mörk. Aldís Ásta Heimisdóttir gerði fjögur.

Staðan í einvíginu er 1:1 en það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki fer í úrslit.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert