Hefur þig alltaf dreymt um að gista í klukkuturni Orsay-minjasafnsins í París? Eða í húsi tröllkallsins Shrek úr samnefndri teiknimynd? Nú eða í alvöru Barbí-húsi í Malibu? Nú geta þeir draumar ræst!
Bókunarvefur Airbnb kynnti á dögunum nýjung á heimasíðu sinni þegar þeir bættu við nýjum flokki sem ber heitið „icons“ og inniheldur ellefu einstakar upplifanir sem hægt er að bóka. Á heimasíðunni kemur fram að í flokknum séu „óvenjulegar upplifanir sem hýstar eru af bestu nöfnunum í tónlist, kvikmyndum, sjónvarpi, myndlist, íþróttum og fleira.“
Á meðal þess sem boðið er upp á er gisting í hinu eftirminnilega húsi úr Pixar-kvikmyndinni Up í Nýju-Mexíkó, í klukkuturni Orsay-minjasafnsins í París í Frakklandi, á Ferrari-safni í Ítalíu, á heimili teiknimyndapersónunnar Shrek í skosku hálöndunum, í hinu goðsagnakennda Home Alone-húsi og á heimili Barbí við ströndina í Malibu.