Tungulækur gaf 23 fiska á dag í apríl

Theodór Erlingsson og félagar gerðu sannkallaða mokveiði í Tungulæknum. Þessi …
Theodór Erlingsson og félagar gerðu sannkallaða mokveiði í Tungulæknum. Þessi mynd er frá 10. apríl. Þeir voru komnir með 129 birtinga eftir tvo daga. Veiðin í ár er mun meiri en undanfarin ár. Ljósmynd/Teddi

Veiði í Tungulæk í apríl hefur slegið öll met í samanburði við síðustu ár. Ríflega 700 sjóbirtingar eru komnir í veiðibókina í apríl. Þá er allt haustið eftir, en samt er veiðin á pari við það sem gerðist allt árið í fyrra þegar 779 birtingar voru skráðir. 

Veitt er á þrjár stangir í læknum sem er frekar stuttur en geymir oft ótrúlegt magn af sjóbirtingi. Ef við leikum okkur að því að reikna út veiðina á dagsstöng í apríl þá er hún hreint út sagt ótrúleg. 7,8 fiskar á hverja stöng. Auðvitað duttu út dagar vegna veðurs og sjálfsagt hafa mis kappsfullir veiðimenn verið í læknum. En meðaltalið er þannig að vandséð er að hægt sé að komast í betri veiði, þegar horft er á dagstöngina.

Höskuldur B. Erlingsson með einn af 54 birtingum sem Tungulækur …
Höskuldur B. Erlingsson með einn af 54 birtingum sem Tungulækur gaf í tveggja daga veiði, nú í apríl. Megnið af aflanum var flottur geldfiskur. Lækurinn hefur gefið 23,5 birtinga að meðaltali á dag frá því að veiði hófst. Ljósmynd/Aðsend

Meðal dagsveiði í læknum í apríl hefur verið 23,5 fiskar. Það segir okkur að mikið

Veiði er oft góð í Tungulæk á haustin og verður forvitnilegt að sjá hver lokatalan verður þetta árið. Hér að neðan má sjá lokatölur síðustu ára og ljóst að heildarveiðin fer langt yfir það sem sést hefur síðustu ár.

Vorið 2000. Fjórir menn lönduðu 520 birtingum á fjórum dögum. …
Vorið 2000. Fjórir menn lönduðu 520 birtingum á fjórum dögum. Þar voru á ferð heimsþekktir menn úr veiðibransanum, eins og David Bishop og Justin Staal. Ljósmynd/Úr einkasafni

Gamall jaxl sem veiddi Tungulækinn í upphafi aldarinnar sagði að nú væri lækurinn farinn að líkjast sjálfum sér aftur. Þetta sagði Haraldur Eiríksson og rifjar upp að vorið 2000 var hann ásamt Jóni Inga Ágústssyni í leiðsögn í læknum. „Þeir voru þarna fjórir veiðimenn í fjóra daga og lönduðu samtals 520 fiskum. Allt flinkir veiðimenn og þetta varð að eins konar keppni milli þeirra,“ upplýsir hann. Halli bendir á að á þessum tíma hafi menn oft komið í Tungulæk vel hvíldan og enginn veiðimaður hafi kannski sést á bakka þar í viku eða tvær.

Tveir ungir leiðsögumenn voru hópnum til halds og trausts. Hér …
Tveir ungir leiðsögumenn voru hópnum til halds og trausts. Hér eru þeir Jón Ingi Ágústsson og Haraldur Eiríksson með einn af þessum 520 fiskum sem landað var. Öllu var sleppt. Ljósmynd/Úr einkasafni

Annað sem vekur ekki síður athygli þegar veiðin í vor er skoðuð og borin saman við nokkur ár á undan, að þessir allra stærstu sjást ekki núna. Síðustu ár hafa verið að veiðast hundrað sentímetra fiskar og þó nokkrir yfir níutíu sentímetrar. Stærsti fiskurinn til þessa í vor er 88 sentímetrar og ekki nema tíu fiskar hafa veiðst sem ná áttatíu sentímetrum. Það er engu líkara en kynslóð þeirra stærstu sé liðin undir lok. Góðu fréttirnar er hins vegar þær að allur þessi fiskur er að stækka og vonandi sjást aftur þessir 90 plús, eftir nokkur ár.

Hér að neðan má sjá veiðina síðustu ár í Tungulæk. Eins og gefur að skilja er 2024 aðeins tölur yfir apríl veiðina. Hin árin er um að ræða bæði vor og haust veiði.  

Ár             Heildarveiði

2024              705 - miðað við 30. apríl

2023              779

2022              664

2021              701

2020              632

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert