Dýrasta verkið sem selt var á uppboðinu hjá Gallerí Fold í kvöld fór á 5,2 milljónir króna. Meira
Hin heilaga tala í lífeyrisréttindum fólks hefur gjarnan verið 67 ára aldur. Vissulega fylgja þeim aldri ákveðin réttindi þegar kemur að ellilífeyri. Breytingar á vinnumarkaði og samfélagsgerð hafa leitt til breytinga og fjölgað valkostum lífeyrisþega. Meira
Þegar ljóst er orðið að Halla Tómasdóttir mælist með yfir 10% í könnun Prósents fyrir Morgunblaðið hefur Stefán Einar Stefánsson, stjórnandi Spursmála boðað hana til viðtals. Verður hún gestur þáttarins næstkomandi föstudag. Meira
„Ég hef sagt áður að ég telji að það verði áfram sviptingar og mér sýnist það alveg vera að ganga eftir.“ Meira
Stór hópur Grindvíkinga á samastað sinn í tilverunni í Vogabyggð í Reykjavík. Í stórum klasa nýrra fjölbýlishúsa við Stefnisvog eru alls 75 íbúðir og telst kunnugum svo til að um 50 þeirra séu í útleigu til fólks úr Grindavík. Meira
Samtökin No Borders hafa boðað til mótmæla á Keflavíkurflugvelli í kvöld gegn brottvísun Blessing, Mary og Esther sem senda á til Nígeríu. Meira
Dómsmálaráðuneytið telur líklegt að bregðast þurfi við því að ekkert verklag sé til um skráningu barna í þjóðskrá, sem fæðast án aðkomu fagfólks, með lagabreytingu. Nefnd hefur verið skipuð til að taka barnalög til endurskoðunar. Meira
Kjörstaðir í Reykjavík fyrir forsetakosningarnar 1. júní eru 25 talsins og verða þeir opnir frá klukkan 9 til 22. Meira
Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, var harðorður í garð stjórnvalda þegar hann fjallaði um mál kvennanna þriggja sem vísa á úr landi til Nígeríu á næstu dögum. Meira
„Við bræðurnir höfum alltaf verið samrýndir. Sú lýsing þarf kannski ekki að koma á óvart miðað við hvernig málin hafa þróast,“ segir Leifur Guðjónsson úr Grindavík. Meira
Lokað hefur verið fyrir vatn í hluta Garðabæjar eftir að kaldavatnslöng fór í sundur síðdegis í dag. Meira
Tilkynnt var um vinnuslys í Kópavogi í dag en þar fékk ungmenni nagla úr naglabyssu í magann og var flutt með sjúkrabifreið á sjúkrahús til skoðunar. Meira
Stefán Þór Björnsson, fjármálastjóri Solid Clouds, segir Norðurlöndin vera algjörar stórstjörnur þegar kemur að tölvuleikjum og að tilnefning Solid Clouds, fyrir íslenska tölvuleikinn Starborne Frontiers, til Norrænu tölvuleikjaverðlaunanna sé mikil viðurkenning fyrir fyrirtækið og íslenska tölvuleiki. Meira
Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, kallaði eftir viðbrögðum Lilju Daggar Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, um þá ákvörðun stjórnenda fréttaskýringaþáttarins Kveiks að víkja Maríu Sigrúnu Hilmarsdóttur úr Kveiksteyminu. Meira
Hópur fólks mótmælti þróun gervigreindar á Austurvelli í dag. Einn skipuleggjenda mótmælanna segir markmið dagsins ver aða vekja athygli á nauðsyn þess að tímabundin pása á þróun gervigreindar verði tekin á alþjóðavísu. Meira
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna umferðarslyss á Suðurlandi nú síðdegis. Meira
Umboðsmaður Alþingis kallar eftir því að heilbrigðisráðuneytið grípi til markvissra aðgerða til að fækka kvörtunarmálum sem bíða afgreiðslu hjá landlækni. Þetta kemur fram í áliti Umboðsmanns. Meira
Elísa Haukdal Grindvíkingur gagnrýnir vinnubrögð fasteignafélagsins Þórkötlu harðlega og segir fréttaflutning þeirra af samþykktum umsóknum villandi. Meira
Fólk sem nú er að koma inn á vinnumarkaðinn á Íslandi getur vænst þess að eiga digran séreignarsjóð þegar það kemur á lífeyrisaldur, svo fremi að það hugi að sínum málum tímanlega. Meira
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Patrick Florence Riley. Riley, sem er frá Bandaríkjunum, er 45 ára gamall. Meira
„Það vill því miður brenna við að hugmyndin um frið sé sett upp sem andstæða við varnir." sagði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra í opnunarávarpi sínu á hátíðarfundi sem haldinn var í Háskóla Íslands í morgun. Meira
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur lagt fram drög að breytingum á tilvísanakerfi fyrir börn vegna heilbrigðisþjónustu. Meira
Harpa Pétursdóttir hefur verið ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta hjá Orkuveitunni og hefur hún þegar hafið störf. Um er að ræða nýja einingu hjá Orkuveitunni sem er hluti af sviði rannsókna og nýsköpunar. Meira
Starfsmaður Sjúkratrygginga Íslands er grunaður um fjárdrátt í störfum sínum innan stofnunarinnar. Meira
dhandler