Fundu sjálfstraustið í fallegum fötum

Ísak Einar Ágústsson og Fróði Kjartan Rúnarsson brenna fyrir fallega …
Ísak Einar Ágústsson og Fróði Kjartan Rúnarsson brenna fyrir fallega saumuðum herrafötum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Fróði Kjartan Rúnarsson og Ísak Einar Ágústsson eru eigendur Jökuls & Co. en þeir sérhæfa sig í sérsaumuðum fötum. Þegar kemur að jakkafötum á brúðkaupsdaginn segja þeir mikilvægt að brúðguminn klæðist ekki óformlegri fatnaði en gestirnir

„Við ákváðum að stofna Jökul & Co. vegna þess að við viljum að menn sjái að jakkaföt eru meira en eitthvað sem þeir neyðast til að fara í við fínustu tilefni. Þau þurfa ekki að vera óþægileg og ópersónuleg, heldur geta þau dregið fram bestu eiginleika herramannsins. Jakkaföt eiga sér mikla sögu og alls kyns menning sem fylgir þeim,“ segja félagarnir.

Þeir segja að tískuáhuginn hafi kviknað við útskrift úr menntaskóla þegar þeir þurftu að kaupa fyrstu almennilegu jakkafötin. „Maður fann hversu stóran þátt það lék í sjálfstraustinu og þá varð ekki aftur snúið. Svo höldum við að sjónvarpsseríur og myndir hafi ýtt undir áhugann, en þar eru þættir og myndir eins og Peaky Blinders og The Godfather í miklu uppáhaldi. Þar kynntist maður stílum frá fyrri áratugum og einnig víða að úr heiminum. Forvitnin leiddi mann að svokölluðum „bespoke“-saumi, sem tíðkast í London og á Ítalíu, og síðan að sérsaumi eða málsaumi,“ segja þeir.

Félagarnir segja ástríðuna liggja í sérsaumi og ekki að ástæðulausu. „Svipurinn á mönnum sem máta í fyrsta sinn jakkaföt sem passa og klæða þá nákvæmlega eins og þeir vilja er ólýsanlegur. Við vitum að það eru mörg merki sem selja tilbúin jakkaföt, en við höfum næga reynslu til að vita að það er nánast ómögulegt að öll atriði fatanna séu rétt. Þar kemur sérsaumurinn inn, enda tryggir hann að allt sé eins og það á að vera, og það skiptir okkur máli.“

Brúðkaupsjakkaföt í ljósari kantinum eru fullkomin á sumrin.
Brúðkaupsjakkaföt í ljósari kantinum eru fullkomin á sumrin. Ljósmynd/Aðsend

Ljós jakkaföt vinsæl í sumarbrúðkaupum

Næstu almennilegu jakkaföt hjá mörgum á eftir útskriftarjakkafötum eru brúðkaupsjakkaföt og þá velja margir sérsaum. Þegar kemur að brúðkaupsfatnaði er mikilvægt að hugsa út í stemninguna í brúðkaupsveislunni.

„Hin sígildu föt fyrir brúðguma eru svört, dökkgrá og dökkblá jakkaföt en þegar við tölum um tískuna undanfarið þá þarf maður að nefna drapplituðu fötin. Þau hafa verið mjög vinsæl á síðustu árum, sérstaklega hjá yngri kynslóðunum, enda brjóta þau upp hefðirnar. Hér á landi er langvinsælast að gifta sig að sumri til og því hafa ljós föt tíðkast frekar en dökk föt. Við hjá Jökli & Co. erum á móti hugtakinu „tíska“ og mælum alltaf með því að menn finni sinn persónulega stíl. Brúðkaup er fögnuður tveggja manneskja og því mikilvægt að klæðaburður þeirra leyfi persónuleikanum að skína í gegn og geri þeim kleift að líða sem best.“

Eru brúðkaupsjakkaföt öðruvísi en hefðbundin jakkaföt?

„Það er í raun og veru ekki til neitt sem heitir „brúðkaupsjakkaföt“ en við mælum samt alltaf með því að fjárfesta í nýju setti fyrir giftinguna. Bæði vegna þess að brúðkaup eru staðfesting á ást milli tveggja einstaklinga og af því að það er mikilvægt að allt sem getur verið fullkomið sé fullkomið. Brúðguminn er í aðalhlutverki með maka sínum og því er nauðsynlegt að sýna gott fordæmi og vera í sínu allra fínasta, bæði fyrir gestina en einnig fyrir sig sjálfan. Jakkaföt eða smókingföt brúðgumans þurfa aðallega að henta aðstæðum og athöfninni. Fyrir giftingu í sólarlandi væri til dæmis sniðugt að skoða hörjakkaföt en ef giftingin er að kvöldi til í svalari aðstæðum myndu tvíhneppt smókingföt algjörlega slá í gegn.

Rétt svar við þessu er samt að brúðguminn þarf að passa að vera jafn formlegur eða formlegri en gestir hans. Semsagt ef dress-kóðinn er „business formal“ er í lagi fyrir brúðgumann að vera aðeins formlegri, en það er ekki ásættanlegt að vera óformlegri en gestirnir. Það væri heldur kjánalegt ef brúðguminn mætti í hörjakka og chino-buxum ef gestir hans væru í smókingfötum.

Oft er spurt hvort smókingföt séu giftingarklæðaburður. Það fer bæði eftir anda athafnarinnar, það er hversu formleg hún er, og á hvaða tíma dags athöfnin á sér stað. Smókingföt eru í raun „kvöldföt“ og því geta hefðbundin jakkaföt verið nothæfari valkostur fyrir þá sem halda athöfnina fyrr um daginn. Í efri tekjustéttum Bretlands tíðkast það að fólk skipti um föt fyrir kvöldverðinn. Þá fer það úr „dagfötunum“ sem það klæddist við athöfnina sjálfa og fer í „kvöldfötin“ sín. Það er önnur saga og lengri og við myndum ekki búast við þessu af fólki hérlendis. Við hjá Jökli & Co. bjóðum fólki einnig að fá saumaðan texta undir kragann á jakkanum og hafa margir brúðgumar fengið giftingardagsetninguna þar undir sem okkur finnst skemmtileg ósýnileg áminning sem brúðguminn ber með sér hvert sem hann fer þegar hann klæðist jakkanum.“

Blá jakkaföt eru alltaf falleg en hér er sést vel …
Blá jakkaföt eru alltaf falleg en hér er sést vel hvernig sérsaumurinn skiptir máli. Ljósmynd/Aðsend
Svört smókingjakkaföt geta komið vel út í brúðkaupum.
Svört smókingjakkaföt geta komið vel út í brúðkaupum. Ljósmynd/Aðsend

Fallegast þegar fötin passa

Hvað setur punktinn yfir i- hjá brúðgumanum?

„Punkturinn yfir i-ið, eins og við viljum alltaf benda á, er að fötin passi á þig. Það að fötin passi er vanmetin leið til að skera sig úr á meðal manna. Bara það að vestið sé nógu sítt til að fela botninn á skyrtunni, og að aðeins sjáist örlítið í skyrtuermina fyrir jakkanum er langbesta leiðin til að líta út og líða vel. Eins og í svo mörgu og þá sérstaklega hvað viðkemur klæðaburði eru það smáatriðin sem skipta máli með sniðið á fötunum.

Annar punktur sem við viljum leggja áherslu á er að ganga ekki of langt í aukahlutunum. Hógværð er og verður alltaf töluvert fínni en að vera útataður í glingri. Til dæmis ef brúðguminn ætlar sér að vera með ermahnappa þá er algjör óþarfi að vera með stórt og þykkt armbandsúr. Slepptu bindisklemmunni ef þú ert með vasaúr og svo framvegis. Einnig eiga bindið og vasaklúturinn alls ekki að vera með sama mynstri, en skulu samt spila saman.“

Bindið og klúturinn eiga ekki að vera eins en samt …
Bindið og klúturinn eiga ekki að vera eins en samt tóna saman eins og hjá þessum brúðguma. Ljósmynd/Aðsend
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál