Spila ekki meira með Tottenham á tímabilinu

Timo Werner en annar leikmannanna tveggja.
Timo Werner en annar leikmannanna tveggja. AFP/Henry Nicholls

Knattspyrnumennirnir Timo Werner og Ben Davies verða ekki meira með Tottenham á þessari leiktíð vegna meiðsla. 

Fregnirnar staðfesti Ange Postecoglou, stjóri Tottenham, á blaðamannafundi í dag. 

Leikmennirnir tveir meiddust er Tottenham tapaði fyrir Arsenal, 3:2, í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn var. 

Tottenham er í fimmta sæti deildarinnar með 60 stig, sjö stigum minna en Aston Villa í fjórða en liðið á tvo leiki til góða. 

Ben Davies í baráttunni við Bukayo Saka á sunnudaginn var.
Ben Davies í baráttunni við Bukayo Saka á sunnudaginn var. AFP/Ben Stansall
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert