Skoraði sigurmarkið á Ítalíu

Bjarki Steinn Bjarkason skoraði sigurmarkið.
Bjarki Steinn Bjarkason skoraði sigurmarkið. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Íslendingaliðið Venezia er komið upp í annað sæti ítölsku B-deildarinnar í fótbolta eftir sigur á Cremonese á heimavelli sínum í kvöld, 2:1.

Bjarki Steinn Bjarkason lék seinni hálfleikinn með Venezia og skoraði sigurmarkið á 76. mínútu. Hann leysti Mikael Egil Ellertsson af hólmi, en Mikael Egill lék fyrri hálfleikinn.

Venezia er með 67 stig, þremur stigum minna en topplið Parma. Como er í þriðja sæti, einnig með 67 stig, og með leik til góða.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert