Skipbrot Aston Villa á heimavelli

Leikmenn Olympiacos fagna fræknum sigri á Villa Park í kvöld
Leikmenn Olympiacos fagna fræknum sigri á Villa Park í kvöld AFP/JUSTIN TALLIS

Aston Villa tapaði illa á heimavelli sínum gegn gríska liðinu Olympiacos í undanúrslitum Sambandsdeildar Evrópu í kvöld. Villa bíður erfitt verkefni í síðari leiknum í Grikklandi.

Ayoub El Kaabi skoraði þrennu fyrir Oympiacos og Santiago Hezze innsiglaði 4:2 sigur gestanna í kvöld. Ollie Watkins og Moussa Diaby skoruðu mörk Aston Villa en þetta verða að teljast óvænt úrslit.

Fiorentina lagði Club Brugge 3:2 á Stadio Artemio Franchi í Flórens í hinni viðureign kvöldsins en M'bala Nzola skoraði sigurmark fjólublárra í uppbótartíma. 

Seinni leikirnir fara fram 8. maí.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert