Fékk æfingu nefnda eftir sér

Thelma Aðalsteinsdóttir kát eftir að hafa framkvæmt æfinguna sem var …
Thelma Aðalsteinsdóttir kát eftir að hafa framkvæmt æfinguna sem var nefnd eftir henni í dag. Ljósmynd/FSÍ

Fimleikakonan Thelma Aðalsteinsdóttir varð þess heiðurs aðnjótandi að fá æfingu nefnda eftir sér í dómarabók Alþjóða fimleikasambandsins þegar hún keppti með íslenska landsliðinu á Evrópumótinu í áhaldafimleikum í Rimini á Ítalíu í dag.

Í áhaldafimleikum tíðkast það að sá sem framkvæmir æfingu fyrstur af öllum á stórmóti getur fengið æfinguna nefnda eftir sér ef æfingin er framkvæmd án mikilla framkvæmdagalla eða falls.

Thelma hefur verið að æfa nýja æfingu á tvíslá með það að markmiði að fá hana nefnda eftir sér í dómarabókina.

Thelma náði að framkvæma nýju æfinguna á Evrópumótinu í dag og fékk hana því formlega nefnda eftir sér, „Aðalsteinsdóttir“.

Æfingin byggist á framhring í öfugu gripi tengt beint í framheljarstökk eða á fimleikamáli, Weiler hringur tengt í Comaneci framheljarstökk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert