Skoða hegðun stuðningsmanna ÍBV

Pavel Miskevich fagnar ásamt stuðningsmönnum ÍBV í fjórða leik liðanna …
Pavel Miskevich fagnar ásamt stuðningsmönnum ÍBV í fjórða leik liðanna í Vestmannaeyjum í gær. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Aganefnd Handknattleikssambands Íslands, HSÍ, hefur til skoðunar hegðun stuðningsmanna ÍBV í einum af leik liðsins gegn FH í undanúrslitum Íslandsmóts karla.

Á fundi aganefndar síðastliðinn þriðjudag kemur ekki fram hvaða leik er að ræða en þegar fundurinn fór fram var þremur af fjórum leikjum lokið.

Mætast FH og ÍBV í oddaleik í Kaplakrika næstkomandi sunnudagskvöld.

Afgreiðslu málsins var frestað til næsta fundar þann 7. maí og handknattleiksdeild ÍBV gefið færi á að skila inn athugasemdum vegna hegðunar stuðningsmanna liðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert