Arnór varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika

Arnór Sighvatsson.
Arnór Sighvatsson.

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra hefur sett Arnór Sighvatsson tímabundið í embætti varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika frá 1. maí næstkomandi.

Mun hann gegna stöðunni þar til skipað verður í embættið, að því er segir í tilkynningu.

Arnór Sighvatsson er hagfræðingur og býr að áratuga starfsreynslu í Seðlabankanum. Hann var aðalhagfræðingur Seðlabankans á árunum 2004 til 2009 og aðstoðarseðlabankastjóri 2009 til 2018.

Arnór sat þá jafnframt í peningastefnunefnd auk þess að sitja í stjórn Fjármálaeftirlitsins á árunum 2011 til 2019. Arnór tekur nú sem varaseðlabankastjóri sæti í peningastefnunefnd, fjármálastöðugleikanefnd og fjármálaeftirlitsnefnd.

Gunnar Jakobsson, sem gegnt hefur embætti varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika frá 1. mars 2020, lætur að eigin ósk af störfum frá og með 1. maí.

Gunnar hafði áður beðist lausnar úr embætti frá 30. júní næstkomandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK