Finnur endurkjörinn forseti Ungra umhverfissinna

Mótmæli UU frá því fyrr í mánuðinum. Mynd úr safni.
Mótmæli UU frá því fyrr í mánuðinum. Mynd úr safni. Ljósmynd/Aðsend

Finnur Ricart Andrason var í gær endurkjörinn forseti Ungra umhverfissinna.

Ungir umhverfissinnar (UU) kynna nýja stjórn félagsins í tilkynningu en hún var kjörin á aðalfundi samtakanna í gær, laugardag.

Í tilkynningu segir að fjöldi félaga hafi aukist á líðandi starfsári og að heildarfjöldi félaga nemi nú tæplega 1.600.

Stjórnin er sem fylgir:

Forseti: Finnur Ricart Andrason

Varaforseti: Snorri Hallgrímsson

Gjaldkeri: Sólveig Jóhannesdóttir Larsen

Fræðslufulltrúi: Ragnhildur Katla Jónsdóttir

Hringrásafulltrúi: Laura Sólveig Lefort Scheefer

Loftslagsfulltrúi: Ida Karólína Harris

Náttúruverndarfulltrúi: Sigrún Perla Gísladóttir

Samskiptafulltrúi: Fífa Jónsdóttir

Ný stjórn Ungra umhverfissinna.
Ný stjórn Ungra umhverfissinna. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert