Mánudagur, 13. maí 2024

Erlent | AFP | 13.5 | 23:25

Dularfull hola á gröf ráðherra

Þýskir embættismenn votta Schäuble virðingu sína við...

Þýska lögreglan hefur hafið rannsókn á tilurð djúprar holu sem uppgötvaðist í dag við gröf Wolfangs Schäubles, fyrrverandi fjármálaráðherra landsins sem lést í fyrra. Meira

Erlent | mbl | 13.5 | 21:20

Þýskur kafbátur ógn við norskt lífríki

Annar helmingur flaks U-864 á 150 metra dýpi undan...

Marianne Sivertsen Næss, sjávarútvegsráðherra Noregs, lýsti því yfir á blaðamannafundi í morgun að ætlun ríkisstjórnarinnar væri að ná svo miklu kvikasilfri sem framast væri unnt úr flaki þýska kafbátsins U-864 sem liggur úti fyrir Fedje í Vestland-fylki. Meira

Erlent | mbl | 13.5 | 19:37

14 ára fangelsi fyrir manndráp

Ástralska lögreglan. Mynd úr safni.

Ungur karlmaður hefur verið dæmdur í 14 ára fangelsi fyrir að hafa stungið tveggja barna móður til bana á jóladegi árið 2022 í Brisbane, Ástralíu. Vakti málið mikinn óhug og er eitt af nokkrum málum sem leiddi til þess að lög er varða unglingaglæpi voru hert í Queensland-fylki í Ástralíu. Meira

Erlent | mbl | 13.5 | 18:05

AfD enn á lista sem hættuleg öfgasamtök

Peter Boehringer og Roman Reusch meðlimir AfD.

Hæstiréttur í Þýskalandi úrskurðaði í dag að þýska leyniþjónustan gæti haldið áfram að fylgjast með öfgahægriflokknum Alternative für Deutschland (AfD). Meira

Erlent | mbl | 13.5 | 17:30

Réttarhöld hafin á ný í hrottalegu morðmáli

Thomsen áfrýjaði málinu til landsréttar en hann var dæmdur...

Réttarhöld vegna morðsins á hinni 22 ára gömlu Mia Skadhauge Stevn hófust á ný í Álaborg í dag. Meira

Erlent | AFP | 13.5 | 15:32

Strangari reglur gilda um Booking.com

Booking.com hefur nú sex mánuði til að búa sig undir að...

Evrópusambandið bætti í dag hollenska gistibókunarrisanum Booking.com á lista sinn yfir stafræn fyrirtæki sem náð hafa þeirri stærð að falla undir strangari samkeppnisreglur. Um leið tilkynnti Brussel að sambandið hygðist rannsaka hvort samfélagsmiðillinn X teldist geta notið undanþágu frá reglunum sem Booking.com hlítir nú. Meira

Erlent | mbl | 13.5 | 15:28

Ísraelsmenn ráðast inn í Jabalia

Palestínumenn flýja Jabalia-flóttamannabúðirnar vegna árása...

Harðir bardagar geisa nú í Jabalia-borg í norðurhluta Gasasvæðisins. Ísraelsmenn hafa ráðist aftur inn á viss svæði borgarinnar þar sem þeir telja Hamas-liða safnast þar saman á ný. Meira

Erlent | mbl | 13.5 | 15:06

Rússar sækja fram í Úkraínu

Um sex þúsund íbúar í landamæraþorpum í Úkraínu hafa flúið...

Rússar hafa náð yfir 30 bæjum og þorpum í norðausturhluta Karkív-héraðs í Úkraínu á sitt vald eftir að hafa hafið óvænta sókn á landamærum Úkraínu á föstudag. Meira

Erlent | mbl | 13.5 | 13:35

Ítreka áhyggjur af kínverskri gervigreind

Xi Jinping, forseti Kína.

Fyrstu tvíhliða viðræður Bandaríkjanna og Kína um gervigreind verða haldnar á morgun. Fulltrúar stjórnvalda í Washington munu þar reifa áhyggjur sínar af því hvernig þau í Peking hafa beitt tækninni fyrir sig, að sögn bandarískra embættismanna. Meira

Erlent | AFP | 13.5 | 13:28

Hvetja karla til að keyra eins og konur

Mynd 1491411

Frönsk umferðaröryggissamtök hafa hleypt af stað nýrri herferð þar sem karlmenn eru hvattir til að keyra eins og konur. Markmiðið með herferðinni er að fækka dauðsföllum og afsanna staðalímyndina að karlmenn séu betri ökumenn en konur. Meira

Erlent | AFP | 13.5 | 12:00

Myndi leyfa kjarnavopn í Svíþjóð á stríðstímum

Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar.

Sænski forsætisráðherrann Ulf Kristersson segist vera opinn fyrir að hýsa kjarnavopn í Svíþjóð á stríðstímum, en gagnrýnendur hafa kallað eftir því að bannað verði að hýsa þau í landinu. Meira

Erlent | AFP | 13.5 | 10:17

43 látnir og 15 saknað

Að minnsta kosti 43 eru látnir eftir flóðið á Súmötru.

Að minnsta kosti 43 manns hafa látið lífið vegna flóða á Súmötru í Indónesíu og 15 til viðbótar er saknað. Meira

Erlent | AFP | 13.5 | 9:48

Hvetja konur til að hætta notkun getnaðarvarna

Áhrifavaldar eru í auknu mæli farnir að hvetja fylgjendur...

Bandarískir áhrifavaldar eru í auknum mæli farnir að hvetja fylgjendur sína til að hætta notkun getnaðarvarna með fullyrðingum um að getnaðarvarnir leiði til ófrjósemi og minnki kynhvöt. Meira

Erlent | AFP | 13.5 | 7:22

Skutu niður 31 úkraínskan dróna í nótt

Úkraínskir slökkviliðsmenn að störfum í Karkív, eftir...

Rússneski herinn kveðst hafa skotið niður 31 úkraínskan dróna í nótt, yfir nokkrum héruðum Rússlands og einnig yfir Krímskaganum, sem innlimaður var í landið árið 2014. Meira

Erlent | mbl | 13.5 | 6:42

Eðjuflóð varð tugum að bana

Horft yfir eyðilegginguna á Súmötru úr lofti í gær, 12. maí.

Að minnsta kosti 37 eru látnir eftir skyndileg flóð á indónesísku eynni Súmötru um helgina. Meira



dhandler