Mál hjúkrunarfræðingsins fer aftur fyrir héraðsdóm

Steina Árnadóttir í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Steina Árnadóttir í Héraðsdómi Reykjavíkur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sýknudómur Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Steinu Árnadóttur hjúkrunarfræðings var ómerktur í Landsrétti í dag. Málinu er vísað til meðferðar og dómsálagningar í héraðsdómi að nýju. 

Steina var sýknuð af ákæru þess efn­is að hafa orðið sjúk­lingi á geðdeild Land­spít­al­ans að bana, þann 16. júní 2021. Taldi héraðsdóm­ur sannað að aðgerðir Steinu við björg­un­ar­tilraun hafi valdið bana sjúk­lings­ins en það hafi ekki verið ásetn­ing­ur henn­ar og hún því sýknuð.

Engin varakrafa 

Ekki var höfð uppi varakrafa í ákæru um heimfærslu til refsiákvæða. 

Í úrskurði Landsréttar segir að ósannað sé að Steina hefði haft ásetning til að svipta brotaþola lífi og því er hún sýknuð af broti gegn 211. gr. almennra hegningarlaga, sem og öðrum þeim brotum sem henni voru gefin að sök í ákæru. 

Í greinargerð ákæruvaldsins til Landsréttar kom fram að færi svo að rétturinn teldi ósannað að ásetningur Steinu hefði staðið til að svipta brotaþola lífi væri byggt á því að líta bæri á háttsemina sem stórfellda líkamsárás sem bani hefði hlotist af og yrði hún samkvæmt því heimfærð til 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga, en yrði ekki á það fallist teldi ákæruvaldið í það minnsta liggja fyrir að Steina hefði svipt brotaþola lífi svo að varðaði hana refsingu samkvæmt 215. gr. laganna.

Í úrskurði Landsréttar kemur fram að ef héraðsdómur teldi vafa leika á því að Steina hefði haft ásetning til að svipta brotaþola lífi, svo að fullnægt væri huglægum refsiskilyrðum 211. gr. almennra hegningarlaga, hefði dóminum borið að gefa sakflytjendum færi á að flytja málið út frá því hvort heimfæra mætti ætlað brot hennar undir 2. mgr. 218. gr. laganna, ellegar 215. gr. þeirra.

„Það hefði ekki verið gert og yrði ekki leyst úr því fyrir Landsrétti hvort málið yrði dæmt eftir öðrum refsiákvæðum en í ákæru greindi, enda myndi slík úrlausn ekki fela í sér endurskoðun á niðurstöðu héraðsdóms.“

Dómurinn er því ómerktur án kröfu og skal héraðsdómur taka málið til meðferðar á ný og fella síðan á það efnisdóm. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert